Föstudagur 31. janúar 2025 kl. 15:36

Afmælismynd VF í tilefni af 30 ára afmæli Reykjanesbæjar

Reykjanesbær fagnaði 30 ára afmæli á síðasta ári. Í tilefni afmælisins hafa Víkurfréttir framleitt 45 mínútna afmælismynd þar sem rætt er við bæjarbúa og þeir spurðir út í lífið í Reykjanesbæ.

Einnig er í myndinni farið í safn Víkurfrétta og sýnd brot úr nokkrum viðtölum sem tekin hafa verið í gegnum tíðina og tengjast sögu Reykjanesæjar.