Mánudagur 14. október 2024 kl. 10:33

Besta listaverkið er eftir

„Ég byrjaði á höggmyndalist í kringum 2010, er búinn að gera 98 skúlptúra og er alls ekki hættur, besta verkið er alltaf eftir“ segir höggmyndalistamaðurinn Helgi Valdimarsson en hann er að taka þátt í sýningu í Norræna húsinu ásamt öðru listafólki.

Vörubíll var í hlaðinu hjá Helga að sækja fimm verk þegar blaðamann bar að garði. Það sjötta gat Helgi flutt sjálfur í sínum bíl.

Stærsta og þyngsta verkið sem Helgi hefur gert, af Ingólfi Arnarsyni, vegur um tvö tonn.

Sjáið viðtal við Helga í spilaranum hér að ofan.