Suðurnesjamagasín á grindvískum nótum
Þrítugasti þáttur ársins af Suðurnesjamagasíni er kominn á netið. Þáttur vikunnar er á grindvískum nótum. Okkar maður fór á tónleika Grindavíkurdætra í Hljómahöll, fjölmenna samkomu í Grindavíkurkirkju, ræddi við fólk þegar ljósin voru kveikt á nýju listaverki við Kvikuna og skellti sér svo í sund þegar sundlaug Grindavíkur va opnuð í fyrsta skipti eftir að bærinn var yfirgefinn 10. nóvember í fyrra.
Þátturinn byrjar hins vegar á keflvískum knattspyrunköppum sem rifjuðu upp tuttugu ára gamlan bikarmeistaratitil.