Fréttir

Langtímaveikindi kosta um 200 milljónir á árinu
Fimmtudagur 19. september 2024 kl. 10:55

Langtímaveikindi kosta um 200 milljónir á árinu

Kostnaður sem hlýst af langtímaveikindum starfsfólks menntasviðs Reykjanesbæjar stefnir í að verða 200 milljónir á árinu 2024. Þetta kemur fram í gögnum Helga Arnarsonar, sviðsstjóra menntasviðs, sem lagðar voru fyrir menntaráð á dögunum.

Í ljósi kostnaðar sem áætlaður er í ár vegna langtímaveikinda starfsfólks menntasviðs Reykjanesbæjar vill menntaráð bæjarins leggja til að skoðaður verði fýsileiki þess að ráða inn starfsmann í mannauðsdeild Reykjanesbæjar sem hefur umsjón með mannauðsmálum menntasviðs.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Með þessu er mögulegt að bæta líðan starfsfólks sviðsins og þannig lækka þann kostnað sem hlýst af langtímaveikindum starfsfólks sem stefnir í 200 milljónir á árinu 2024, eins og áður segir.

Margrét Þórarinsdóttir, bæjarfulltrúi Umbótar, segist í bókun á bæjarstjórnarfundi í vikunni taka undir með Helga Arnarsyni um mikilvægi þess að ráða inn starfsmann í mannauðsdeild Reykjanesbæjar sem myndi hafa umsjón með mannauðsmálum menntasviðs.

„Það þarf að greina þann vanda sem er nú til staðar hjá starfsfólki menntasvið, hver er ástæðan á bakvið öll þessi langtímaveikindi. Eins og staðan er í dag þá erum við að tala um 200 milljónir í greiðslu til starfsfólk sem hefur farið í langtímaveikindi. Miðaða við þann kostnað sem hlýst að langtímaveikindum þá sjáum við að það endurspeglar starfsaðstæður kennara og það þarf svo sannarlega að hlúa betur að þeim,“ segir m.a. í bókun Margrétar.