Gasmengun í Reykjanesbæ
Gasmengun mælist nú í Keflavík og Njarðvík, en hækkuð gildi á brennisteinsdíoxíði og svifryki hafa mælst frá því um kl. 19 í kvöld. Mengunin telst óholl fyrir viðkvæma.
Búast má við að gasmengunin minnki á þessum stöðum þegar vindáttin snýst síðar í kvöld. Þá gæti mengunar orðið vart í Vogum.
Gasdreifingarspá má sjá hér: https://www.vedur.is/eldfjoll/eldgos-a-reykjanesi/gasmengun/
Loftgæði má sjá á: www.loftgaedi.is