Fréttir

Gossprungan ekki lengst síðan snemma í morgun
Eldgosið séð frá Vogastapa rétt fyrir hádegi. VF/Hilmar Bragi
Föstudagur 23. ágúst 2024 kl. 12:16

Gossprungan ekki lengst síðan snemma í morgun

Í upphafi gossins opnaðist gossprungan á milli Stóra-Skógfells og Sundhnúks líkt og í síðustu eldgosum. Fyrstu klukkustundir gossins lengdist sprungan stöðugt í norðaustur frá Stóra-Skógfelli þar til á milli kl. 5 og 6 í morgun. Á sama tíma og gosvirknin færðist norðaustur þá dró úr virkninni á suðurhlutanum og gýs nú á sprungu á svæðinu frá Stóra-Skógfelli og þaðan til norðaustur í um 2-3 km. Gossprungan sem nú er virk nær nokkuð norðar heldur en í þeim eldgosum sem hafa orðið síðan í desember 2023 á þessu svæði. Frá þessu er greint í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands.

Þegar virkni á gossprungunni færðist norðar hægði á hraunflæði í átt að Grindavíkurvegi norðan Svartsengis. Meginstraumur hraunflæðis er því til norðvesturs norðan Stóra-Skógfells. 

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Hraunbreidan23082024

Kort sem sýnir útbreiðslu hraunsins (skástrikað svæði) sem hefur myndast í þessu gosi og staðsetningu gossprungunnar (rauð lína) eins og hún var kl. 03:39 í nótt. Einnig eru sýndar þær hraunbreiður sem hafa myndast á svæðinu frá desember 2023 (Fjólubláar þekjur). Kortið er byggt á gögnum úr IcEYE gervitungli.

Samhliða því að gossprungan lengdist mældist töluverð skjálftavirkni og aflögun í kringum gossprunguna.  Eftir klukkan 4 í morgun dró verulega úr skjálftavirkni og hægðist sömuleiðis á aflögun, sem passar vel við þróun gossprungunnar. Þrátt fyrir að dregið hafi úr hraða aflögunar mælist hún þó enn.  

Kortjardskjalftar23082024

Til vinstri er kort sem sýnir yfirlit yfir þróun og staðsetningu jarðskjálfta í kringum Sundhnúksgígaröðina síðan kl. 20:00 í gærkvöldi til kl. 11:00 í dag. Til hægri er súlurit sem sýnir fjölda skjálfta sem mældust á hverri klukkustund.

Í dag og á á morgun er norðan og norðvestanátt á gosstöðvunum. Gasmengun frá eldgosinu mun því berast til suðurs og suðausturs. Hægt er að fylgjast með gasdreifingarspá á vefnumokkar.