Viðreisn
Viðreisn

Fréttir

Framkvæmdir við sprungufyllingar hafnar á fimm stöðum í Grindavík
Unnið við sprungufyllingar í Grindavík á mánudaginn. VF/Sigurbjörn Daði
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson skrifar
fimmtudaginn 12. september 2024 kl. 06:08

Framkvæmdir við sprungufyllingar hafnar á fimm stöðum í Grindavík

Framkvæmdir við sprungufyllingar eru hafnar á fimm stöðum í Grindavík, þ.e. við Sjávarbraut, Eyjasundi, Víkurbraut, Verbraut og Víkurtúni. Áætlað er að framkvæmdunum ljúki í október.

Framkvæmdirnar eru hluti af aðgerðaáætlun um viðgerðir á götum, opnum svæðum og öðrum innviðum í Grindavík. Aðgerðirnar miða að því að tryggja virkni og öryggi innviða, þar á meðal á gatnakerfi, lögnum og opnum svæðum.

SSS
SSS

Þá er einnig hafin vinna við að girða af óörugg svæði innanbæjar en áætlað er að lagðir verði 6,8 km af mannheldum girðingum. Gert er ráð fyrir að hægt sé að leggja 350 metra af girðingum á dag.