Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Alvarlegt að afsala sér meirihlutavaldi í HS veitum
Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar.
Mánudagur 30. desember 2013 kl. 09:39

Alvarlegt að afsala sér meirihlutavaldi í HS veitum

Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, segir alvarlegt ef Reykjanesbær ætlar að afsala sér meirihlutavaldi í HS veitum. En á næstu dögum verður skrifað undir samkomulag um sölu á um þriðjungs hlut í HS veitum til einkaaðila sem þar með eignast í fyrsta skipti hlut í vatnsveitu. Þetta kemur fram á vísir.is.

Neysluvatnið okkar, bæði kalda og heita vatnið, hefur hingað til verið í eigu almennings. En nú er það að gerast að einkaaðili er að eignast um þriðjungs hlut í HS veitum m.a. fyrir tilstuðlan Reykjavíkurborgar.

Samningar liggja fyrir um sölu 15 prósenta hluts Reykjanesbæjar annars vegar og 15 prósenta hluts Orkuveitu Reykjavíkur hins vegar í HS veitum og smærri sveitarfélög sem eiga hvort um sig allt að 0,5 prósenta hlut selja einnig til Úrsusar sem er félag í eigu Heiðars Más Guðjónssonar fjárfestis.

Sóley Tómasdóttir borgarfulltrúi Vinstri grænna segir í að þar með sé stigið fyrsta skrefið til almennrar einkavæðingar vatnsveitna.

„Það er mjög skrýtið að Samfylking og Besti flokkur skuli vera að standa fyrir þessum gjörningi. Vissulega hefur þetta skammtímaáhrif á fjárhag Orkuveitunnar. En það er verið að fórna þarna mjög ríkum almannahagsmunum,“ sagði Sóley í hádegisfréttum Bylgjunnar í gær. Þarna sé verið að fórna almannahagsmunum fyrir skammtíma bóhaldstrikk fyrir Orkuveituna.

Árni Páll segir flokkinn hafa staðið fyrir lagabreytingum árið 2008 sem tryggðu að veitur yrðu alltaf í meirihlutaeign opinberra aðila en áður hafi engin takmörk verið í þeim efnum. Þá hafi verið settar skorður á möguleika þeirra til að hækka gjaldskrár.

„Það sem er áhyggjuefni varðandi fréttir af þessu tiltekna máli er ef menn eru að gera hluthafasamkomulag til að komast hjá því að virða lagaákvæði um skyldur opinberra aðila sem meirihlutaeiganda í veitufyrirtæki,“ segir Árni Páll.

Sterk rök séu fyrir því að veitufyrirtæki séu í opinberri eigu og á það hafi Samfylkingin lagt áherslu í þeim sveitarfélögum þar sem hún hafi verið í meirihluta.

„Og ég er ekki sannfærður um að það standist lögin eins og þau eru úr garði gerð ef meirihlutaeigendur, sem samkvæmt lögum  þurfa að vera opinberir aðilar, eru að afsala sér ákvörðunarvaldi sínu sem þeim er fært með lögunum,“ segir Árni Páll.

Hann var þá spurður að því hvort að honum fyndist að það þurfi að skoða hvort þarna er verið að brjóta á þessum lögum. „Það er alveg ótvírætt að við verðum að skoða þann þátt málsins þegar þing kemur saman,“ segir formaður Samfylkingarinnar.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024