Flugger
Flugger

Fréttir

Fisktækniskólinn flytur starfsemina til Suðurnesjabæjar
Magnús Stefánsson bæjarstjóri og Klemens Sæmundsson skólameistari Fisktækniskóla Íslands undirrituðu samning um leigu á húsnæðinu nú í vikunni. Mynd/sudurnesjabaer.is
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
föstudaginn 5. júlí 2024 kl. 08:29

Fisktækniskólinn flytur starfsemina til Suðurnesjabæjar

Suðurnesjabær og Fisktækniskóli Íslands hafa gert með sér samning um að Fisktækniskólinn leigi hluta af húsnæði leikskólans Sólborgar í Sandgerði til eins árs. Þar með mun starfsemi skólans fara fram í Suðurnesjabæ næsta skólaár. Þetta eru ákveðin tímamót að því leyti að þá mun í fyrsta skipti fara fram skipuleg kennsla á framhaldsskólastigi í Suðurnesjabæ. Umrætt húsnæði er laust þar sem starfsemi leikskólans mun eftir sumarleyfi færast inn í nýja leikskólann Grænuborg.

Frá þessu segir á vef Suðurnesjabær en þar segir jafnframt: „Suðurnesjabær fagnar Fisktækniskólanum og er skólinn boðinn velkominn í Suðurnesjabæ. Við væntum góðs af samstarfi við skólann a.m.k. næsta árið en Fisktækniskólinn hefur átt gott samstarf við sjávarútvegsfyrirtæki í Suðurnesjabæ á undanförnum árum. Eins og kunnugt er hefur starfsemi Fisktækniskóla Íslands verið í Grindavík en skólinn þurfti að færa starfsemi sína úr Grindavík sl. vetur þegar bærinn var rýmdur vegna náttúruhamfara.“

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024