Mannlíf

„Aftur heim“-hópur Grindvíkinga ánægður eftir fund með ráðherrum
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson skrifar
sunnudaginn 7. júlí 2024 kl. 08:50

„Aftur heim“-hópur Grindvíkinga ánægður eftir fund með ráðherrum

„Þetta var mjög gagnlegur fundur, sem þessi hópur hefur beðið nokkuð lengi eftir en það var athyglisvert hve margt af því sem við sögðum Bjarna og Guðrúnu frá, kom þeim á óvart,“ segir Eva Lind Matthíasdóttir, forsprakki hins svokallaða „Aftur heim“- hóps í Grindavík. Segja má að stofnfundur hópsins hafi verið 9. apríl á Papas í Grindavík en lengi er búið að vera í pípunum að hitta íslenskt ráðafólk. Eftir að þingið fór í sumarfrí gafst loksins tími mánudaginn 1. júlí og var hist í húsakynnum Umbru í Skuggasundi.

Það voru þrjú mál sem brunnu helst á Grindvíkingum, sem hittust kvöldinu áður á Papas og réðu ráðum sínum.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

„Þessi fundur er búinn að standa lengi til en það var erfitt að finna tíma sem hentaði ráðherrunum okkar, Bjarna Benediktssyni, forsætisráðherra, og Guðrúnu Hafsteinsdóttur, dómsmálaráðherra en loksins fannst glufa eftir að þingið fór í frí. Við hittumst í Grindavík á sunnudagskvöld og úr varð að við vildum ræða þrjú málefni; lokunarpósta, framkvæmdanefnd og málefni Þórkötlu.

Flóttaleiðir þurfa vera klárar

Okkur skilst að Almannavarnir vilji ekki afnema lokunarpóstana fyrr en allar flóttaleiðir úr Grindavík séu klárar.

„Nokkrar götur hafa verið girtar af vegna gruns um holrými undir þeim en blessunarlega væri staðan ekki eins alvarleg eins og áður var talið, menn eru að læra betur á þessar jarðvegsskimunartæki en sums staðar leit út fyrir að væri holrými sem svo reyndist ekki vera. Líklegt er samt að nokkur holrými séu, t.d. við Kvennó en það sögufræga hús liggur við Víkurbrautina, sem er aðalgatan inn og út úr bænum. Stóra sprungan sem opnaði sig 10. nóvember liggur þarna í gegn og ljóst að þarna þarf að skoða betur. Sem betur fer hefur Grindavíkurbær samþykkt fjárveitingu í að hefja þessar framkvæmdir og það var mjög gott að heyra frá Bjarna Ben að við þurfum ekki að hafa áhyggjur af því að ekki fáist fjármagn í þessar viðgerðir, ef ríkið eigi að borga brúsann þá verður það ekki vandamál. Við vorum öll sammála um að ráðast í þessar viðgerðir sem fyrst og svo kemur einfaldlega í ljós hver eigi að borga því nokkrir aðilar eiga hagsmuna að gæta, bæði Grindavíkurbær og einkafyrirtæki. Það kom mjög góður punktur fram samhliða þessu, Vegagerð ríkisins hefur staðið sig mjög vel í viðgerðum og var mælt með því að hún sjái um þessar viðgerðir.

Við höfum haft áhyggjur af því að Framkvæmdanefndin hafi ekki fjárveitingu en Bjarni var fljótur að slá á allar slíkar áhyggjur, það mun verða til peningur og hann eins og við, væntum mikils af starfi Framkvæmdanefndar Grindavíkur.“

Dagsetning ákvörðunar um sölu

Málefni Þórkötlu brenna á flestum ef ekki öllum Grindvíkingum og segir Evar að dagsetning ákvörðunar um sölu á eignum hafi verið eitt af þeim.

„Það sem brennur á þeim Grindvíkingum sem ekki hafa enn og ætla hugsanlega ekki að selja eignir sínar til Þórkötlu er af hverju taka þurfi ákvörðun um það fyrir 31. desember. Dagsetning sem átti að vera á mánudaginn (1. júlí). Bjarni var búinn að heyra af þessu og var búinn að ýta þessum bolta af stað, hann sér ekki nein haldbær rök fyrir þessari dagsetningu.

Ég hafði líka orð á því að Grindvíkingar þurfi að tæma alla húseignirnar en flestir ef ekki allir eru að flytja í minna húsnæði og koma því ekki búslóð sinni allri fyrir. Það er sorglegt að sjá alla ruslagáma fulla af fullkomlega heilum húsgögnum, mig grunar að verðmætið hlaupi á hundruðum milljóna. Bjarna var bent á að það er ekki eins og þetta séu venjuleg fasteignaviðskipti þar sem seljandinn vill selja, það er verið að neyða Grindvíkinga í þessa aðgerð. Bjarni sagði að þetta yrði svo sannarlega skoðað betur.

Svo hefur margt verið á huldu varðandi leigusamning við Þórkötlu. Sumir Grindvíkingar ætla sér að selja fasteign sína til að enda kannski ekki uppi með verðlausa eign eftir nokkur ár, en ætla sér að búa áfram í húsinu og leigja af Þórkötlu. Það eina sem er fast í hendi er viðmiðunarverðið 625 kr. pr. fermetra en það verð gildir bara til áramóta, eftir það hafa verið sögusagnir um að verð í næsta nágrenni verði haft til viðmiðunar. Í raun er kannski mikilvæg spurning til eigenda og stjórnenda Þórkötlu, er félagið hagnaðardrifið eða á það verða það? Við Grindvíkingar neitum að trúa því en þessar upplýsingar verða að koma fram. Ráðherrunum var líka bent á að það geti ekki verið sanngjarnt að Jón og Gunna, sem búa hlið við hlið í eins húsum, borgi sömu leiguna og Jón ætlar að búa í húsinu en Gunna bara að koma af og til, opna glugga, slá garðinn og í raun að taka húsið sitt í fóstur. Ef einhver ætlar að halda fram að það sé sanngjarnt að þessir aðilar borgi sömu leigu, væri ég til í að heyra rökin fyrir því.

Góður fundur

Við Grindvíkingarnar sem sátum þennan fund, fórum hálfpartinn valhoppandi af kæti út af fundinum, við vorum ofboðslega ánægð. Það var þetta sem þurfti, fólk þurfti að tala saman og það var greinilega nauðsynlegt fyrir þessa flottu ráðherra okkar að fá að heyra frá fyrstu hendi hvernig þessi mál líta út fyrir okkur í þessum „Aftur heim“ - hópi,“ sagði Eva Lind að lokum.