Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Gray Line býður „búbbluferðir“ að gosinu
Þriðjudagur 30. mars 2021 kl. 13:06

Gray Line býður „búbbluferðir“ að gosinu

Til að gæta að ítrustu sóttvörnum býður hópferðafyrirtækið Gray Line 10 manna hópum í „búbbluferðir“ að upphafi gönguleiðarinnar á gosstöðvarnar í Geldingadal. Fyrirkomulagið miðast við allt að 10 manna hópa sem taka sig saman um ferðina. Hópferðabíll Gray Line kemur og sækir hópinn á umsömdum stað og tíma og ekur með hann að upphafi gönguleiðarinnar. Bíllinn sækir hópinn svo á sama stað að göngu lokinni og skilar á upphafsstað, segir í frétt frá Gray Line.

„Með því að bjóða fólki að vera í sinni eigin smitvarnar„búbblu“ og njóta þess að upplifa eldgosið saman sláum við tvær flugur í einu höggi. Í leiðinni losnar fólk við langar göngur til og frá bílastæðum og sest inn í heitan bíl í lok ferðarinnar. Þetta fyrirkomulag er betra upp á smitvarnir að gera en áætlunarferðir þar sem ótengt fólk er saman í rútu á föstum tímasetningum,“ segir Þórir Garðarsson, stjórnarformaður Gray Line.

20 manna hópferðabílar eru notaðir í „búbbluferðirnar“ og er nánari upplýsingar að fá hjá Gray Line á Íslandi í síma 540-1313.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024