Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Grinda­vík ham­ingju­sam­asta sveit­ar­fé­lag lands­ins
Hamingjusamir Grindvíkingar. Mynd frá fjörugum föstudegi í Grindavík. VF-mynd: pket
Miðvikudagur 20. mars 2019 kl. 17:16

Grinda­vík ham­ingju­sam­asta sveit­ar­fé­lag lands­ins

Grinda­vík er ham­ingju­sam­asta sveit­ar­fé­lag lands­ins sam­kvæmt nýrri könn­un Embætt­is land­lækn­is á ham­ingju Íslend­inga. Dóra Guðrún Guðmunds­dótt­ir, sviðsstjóri áhrifaþátta heil­brigðis hjá Embætti land­lækn­is, kynnti niður­stöðurn­ar í dag, á alþjóðlega ham­ingju­deg­in­um, á málþingi í Há­skóla Íslands þar sem fjallað var um ham­ingju, heilsu og vellíðan. Það er mbl.is sem greinir frá þessu.
 
Í frétt mbl.is segir að þegar ham­ingja er skoðuð eft­ir sveit­ar­fé­lög­um trón­ir Grinda­vík á toppn­um. Í könn­un­inni eru íbú­ar spurðir hvernig þeim líður á skal­an­um 1-10 þar sem 1-3 merk­ir óham­ingju­sam­ur, 4-7 hvorki né og 8-10 ham­ingju­sam­ur. Grinda­vík er í efsta sæti með 8. Þar á eft­ir koma Akra­nes, Hvera­gerði og Fjarðabyggð með 7,9.
 
Ef svör­in eru skoðuð eft­ir því hvort íbú­ar telja sig ham­ingju­sama, óham­ingju­sama eða hvorki né sést að 73,2% svar­enda í Grinda­vík eru ham­ingju­sam­ir en aðeins 3,3% óham­ingju­sam­ir. Hæsta hlut­fall óham­ingju­samra er í Vest­manna­eyj­um, eða 9,6% svar­enda í bæn­um.
 
 
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024