Fréttir

Hlaupastyrkurinn fór til krabbameinsdeildar Landsspítalans
Klemens og Katrín með starfsfólki á krabbameinsdeild Landsspítalans við afhendingu hlaupastyrksins.
Miðvikudagur 20. desember 2023 kl. 06:06

Hlaupastyrkurinn fór til krabbameinsdeildar Landsspítalans

Klemens Sæmundsson, sem fagnaði sextugsafmæli sínu á árinu með styrktarafmælishlaupi á fjallið Þorbjörn í haust, afhenti nýlega með konu sinni, Katrínu Sigurðardóttur, krabbameinsdeild Landsspítalans eina milljón króna.

Styrkurinn verður allur nýttur í þágu sjúklinga á deildinni og er til minningar um mjög svo kæra vinkonu þeirra, Steinu Þóreyju Ragnarsdóttur. Meðfylgjandi mynd var tekin við afhendingu hlaupa-styrksins.

Viðreisn
Viðreisn