Hraunið flæðir í átt að Fagradalsfjalli
Eldgosið á Sundhnúkagígaröðinni heldur áfram af mjög jöfnum krafti. Í tilkynningu Veðurstofu Íslands segir að gosórói hefur haldist mjög stöðugur síðasta sólahring. Enn flæðir hrauntaumurinn til austurs í átt að Fagradalsfjalli.
Samkvæmt gasdreifingarlíkani má gera ráð fyrir að mengun frá gosstöðvunum geti orðið vart á höfuðborgarsvæðinu í dag.
Sjá nánar um gasmengun.