Fréttir

Kjartan Már í veikindaleyfi til áramóta
Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, á nýliðinni Ljósanótt. VF/Hilmar Bragi
Fimmtudagur 12. september 2024 kl. 11:37

Kjartan Már í veikindaleyfi til áramóta

Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, er kominn í veikindaleyfi. Hann mun þó áfram sinna ýmsum sérverkefnum í samráði við Halldóru Fríðu Þorvaldsdóttur, formann bæjarráðs og staðgengil bæjarstjóra, sem mun taka við stjórnartaumunum fram að áramótum.

Kjartan Már greindist með krabbamein í sumar. Hormónameðferð hófst strax í kjölfar greiningar og er stefnt að geislameðferð í október og nóvember. Gert er ráð fyrir að Kjartan Már taki aftur við starfi bæjarstjóra eftir áramót.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024