„Á morgun verður minn dagur“
Már Gunnarsson keppir í undanrásum í 100 metra baksundi klukkan 01:24 í nótt á Olympíumóti fatlaðra sem fram fer í Tokyo í Japan. Nái Már inn í úrslitasund mun hann synda það á laugardagsmorgun kl. 09:10 að íslenskum tíma.
Már keppti síðustu nótt í 50 metra skriðsundi, sem er ekki hans sterkasta grein. Hann varð sjöundi í sínum riðli og hafnaði í 13. sæti í greininni og náði ekki inn í úrslit.
„Á morgun verður minn dagur,“ skrifar Már í færslu á fésbókina í nótt og vetur fólk til að fylgjast með sundinu eftir miðnætti í kvöld.