Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Bætt æfinga­aðstaða fyrir Golfklúbb Suðurnesja
Fjóla Margrét Viðarsdóttir, afreks­kylfingur úr GS, varð Íslandsmeistari í höggleik og holukeppni á árinu, auk þess að verða stigameistari GSÍ í sínum aldursflokki og klúbbmeistari GS. Með Fjólu á myndinni eru Eva Stefánsdóttir, formaður íþróttaráðs Reykjanes­bæjar, og Guðmundur Rúnar Hallgrímsson, margfaldur klúbbmeistari GS.
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
fimmtudaginn 7. október 2021 kl. 07:17

Bætt æfinga­aðstaða fyrir Golfklúbb Suðurnesja

Reykjanesbær afhenti Golfklúbbi Suðurnesja (GS) nýja aðstöðu til æfinga í gömlu slökkvistöðinni við hlið Borðtennisfélagsins

GS hafði óskað eftir að fá að nýta hluta slökkvistöðvarinnar sem viðbót við aðstöðuna í Akademíunni en hún er fyrir löngu síðan orðin of lítil til að hægt sé að sinna golfþjálfun yfir vetrarmánuðina.

Ólöf Sveinsdóttir, formaður GS, sagði í viðtali við Víkurfréttir að þessi viðbót væri kærkomið skref í rétta átt en nái þó ekki að uppfylla allar þarfir klúbbsins til uppbyggingar og viðhalds afreksstarfs svo hægt sé leggja stund á afreksgolf allt árið.

„Við getur sett upp um 100 m2 púttflöt í salnum og þrjá bása þar sem hægt verður að slá í net. Þá hefur stjórn GS samþykkt að fjárfesta í nýjum golfhermi sem kemur til viðbótar við eldri hermi sem er í Akademíunni,“ sagði Ólöf.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, og Ólöf Sveinsdóttir, formaður GS, við afhendingu aðstöðunnar.