Íþróttir

Jonathan Glenn látinn fara frá Keflavík
Jonathan Glenn er hættur með Keflavík og Guðrún Jóna Kristjánsdóttir tekur við. Mynd úr safni VF/JPK
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
miðvikudaginn 21. ágúst 2024 kl. 22:02

Jonathan Glenn látinn fara frá Keflavík

Stjórn knattspyrnudeildar Keflavíkur ákvað á fundi sínum í dag að endurnýja ekki samning við þjálfara kvennaliðs félagsins, Jonathan Glenn, þegar samningi hans lýkur í lok tímabils. Ennfremur óskar stjórn ekki eftir frekara vinnuframlagi frá þjálfara liðsins það sem eftir lifir keppnistímabilsins.

Það er ekki hægt að segja að þessi tíðindi komi á óvart miðað við stöðu liðsins en Keflavík er í neðsta sæti Bestu deildar kvenna með níu stig eins og Fylkir.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Guðrún Jóna Kristjánsdóttir, sem var aðstoðarþjálfari hjá Glenn, mun stýra liðinu fyrst um sinn en stjórn vinnur að því að ganga frá fyrirkomulagi á þjálfarateymi liðsins.