Íþróttir

Anton Ingi lætur af störfum hjá Grindavík
Anton Ingi Rúnarsson hefur sagt upp störfum hjá Grindavík. VF/JPK
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
miðvikudaginn 11. september 2024 kl. 11:17

Anton Ingi lætur af störfum hjá Grindavík

Anton Ingi Rúnarsson, þjálfari meistaraflokks kvenna Grindavíkur, hefur ákveðið að láta af störfum fyrir félagið.

Anton Ingi gegndi stöðu aðalþjálfara meistaraflokks kvenna og yfirþjálfara yngri flokka Grindavíkur. Hann er búinn að vera í þjálfarateymi meistaraflokks í fjögur ár en hann kom fyrst inn sem aðstoðarþjálfari Jóns Óla Daníelssonar árið 2021 og hefur verið aðalþjálfari meistaraflokks og yfirþjálfari síðastliðin tvö tímabil. Hann hefur verið orðaður við meistaraflokk kvenna hjá Keflavík eftir að Jonathan Glenn var sagt upp störfum hjá félaginu fyrr í sumar.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Frá þessu er greint á Facebook-síðu knattspyrnudeildar Grindavíkur, þar er Antoni Inga þökkuð vel unnin störf og óskað velfarnaðar í framtíðinni: „Þetta tímabil hefur verið okkur sérstaklega krefjandi innan vallar sem utan og hefur Anton Ingi tekið að sér mörg aukaverk fyrir félagið í þessum aðstæðum sem ekki voru í hans verkahring og fyrir það erum við honum einstaklega þakklát.

Við viljum þakka Antoni Inga fyrir gott samstarf og vel unnin störf fyrir félagið um leið og við óskum honum góðs gengis í framtíðinni.“