Áframhaldandi landris og svipuð þróun á Sundhnúksgígaröðinni
Aflögunargögn sýna að landris og kvikusöfnun undir Svartsengi heldur áfram. Ef kvikusöfnun heldur áfram á svipuðum hraða munu 12 milljón rúmmetrar af kviku hafa safnast undir Svartsengi í lok janúar eða byrjun febrúar. Þá er talið, skv. líkanreikningum, að líkurnar á kvikuhlaupi og eldgosi fari að aukast, segir í frétt frá Veðurstofu Íslands. Líkönin byggja á áætluðu kvikuinnflæði á hverjum tíma en litlar breytingar á því innflæði geta haft áhrif á matið á mögulegum tímasetningum næsta eldgoss.
Eins og síðustu vikur hefur verið lítil jarðskjálftavirkni í kringum Svartsengi.
Hættumat Veðurstofunnar hefur verið uppfært og hafa engar breytingar verið gerðir. Það gildir til 28. Janúar, að öllu óbreyttu.
(Smellið á kortið til að stækka)