Fréttir

Boða til íbúafundar um stofnun nýs íþróttafélags í Suðurnesjabæ
Mánudagur 13. janúar 2025 kl. 16:22

Boða til íbúafundar um stofnun nýs íþróttafélags í Suðurnesjabæ

Íbúum í Suðurnesjabæ hefur verið boðið til opins íbúafundar í Gerðaskóla þriðjudaginn 14. janúar kl. 19:30 til að ræða stofnun nýs íþróttafélags í Suðurnesjabæ. Það er samráðshópur um nýtt íþróttafélag í Suðurnesjabæ sem stendur að fundinum.

Fundurinn er tækifæri til að kynna hugmyndina, fá ábendingar og skoðanir frá íbúum og byggja sterkan grunn að íþróttastarfi fyrir framtíðina.

Á fundinum munum við fjalla um markmið og tilgang nýs íþróttafélags. Hvernig íbúar geta tekið þátt í uppbyggingunni, ásamt öðrum málum sem við koma nýju íþróttafélagi.

Alliur áhugasamir íbúar, ungmenni, foreldrar og aðrir eru hvattir til að mæta og taka þátt í þessu verkefni sem miðar að því að efla íþróttalíf í bænum, segir í tilkynningu.