Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

„Reynum eftir fremsta megni að höfða til barnafjölskyldna í Vogum“
Marteinn Ægisson framkvæmdastjóri Þróttar og Petra Ruth Rúnarsdóttir formaður Þróttar.
Hilmar Bragi Bárðarson
Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
fimmtudaginn 27. júní 2019 kl. 13:28

„Reynum eftir fremsta megni að höfða til barnafjölskyldna í Vogum“

Framkvæmdastjóri í fullt starf hjá Þrótti Vogum

Mikil gróska hefur verið í starfi Þróttar undanfarin ár og vöxtur félagsins hraður að sögn Petru Ruth Rúnarsdóttur formanns Þróttar.

„Iðkendum og félagsmönnum hefur fjölgað hratt, félagið er með ýmsa starfsemi í gangi og með hærra starfshlutfalli framkvæmdastjóra fáum við meiri fagmennsku í starfið og getum haldið betur utan um félagið. Einnig hefur verkefnum fjölgað samhliða íþróttagreinum sem stundaðar eru hjá félaginu,“ segir Petra Rut.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

„Sveitarfélagið hefur reynst okkur vel í þessum vaxtaverkjum og styður vel við bakið á okkur. Hér eru allir að róa í sömu átt en núna stefnir í fjölgun íbúa og þá reynum við eftir fremsta megni að höfða til barnafjölskyldna sem vilja setjast að í Vogum vegna þess að hér er gott forvarnarstarf unnið og öflugt íþróttafélag. Síðustu árin hafa verið erfið, það hefur reynt mikið á sjálfboðaliða innan félagsins og aðra sem starfa fyrir félagið. Við höfum verið að berjast við mikla vaxtaverki, höfum verið að vinna hörðum höndum við að láta hlutina ganga upp. Við þessar breytingar getum við vandað betur til verka, verið markvissari í okkar störfum, sinnt félagsmönnum, iðkendum, sjálfboðaliðum og þjálfurum betur í þeirri vegferð sem við erum,“ í sagði Marteinn Ægisson, framkvæmdastjóri Þróttar, sem var í 60% starfshlutfalli og mun fara í fullt starf í sumar.