Fréttir

Minnkandi virkni í einum gíg og minna hraunflæði nærri Svartsengi
Sunnudagur 24. nóvember 2024 kl. 10:42

Minnkandi virkni í einum gíg og minna hraunflæði nærri Svartsengi

Virkni á gosstöðvunum í Grindavík í nótt var nokkuð stöðug framan að en klukkan 5 í morgun dró úr gosóróa og samhliða því minnkaði sjáanleg virkni í miðgígnum, sem hefur verið virkastur hingað til, segir í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands um ástandið í Grindavík.

Enn eru þrír gígar virkir, sá syðsti hefur verið minnstur undanfarna daga en virkni í honum, sem og í nyrsta gígnum, virðist vera nokkuð stöðug áfram. Miðgígurinn hefur verið að fæða hrauntröð meðfram Stóra Skógfelli og áfram meðfram varnargörðum við Svartsengi og Bláa lónið, því ætti minnkandi virkni í honum að skila sér í minna hraunflæði að varnargörðunum á því svæði.  

Gasmengun (SO2) hefur verið að mælast í Grindavík í nótt og í morgun. Fólki á svæðinu er bent á að fylgjast með loftgæðamælingum í rauntíma á vefsíðu Umhverfisstofnunar loftgaedi.is, en þar er einnig að finna upplýsingar um viðbrögð við gasmengun af völdum eldgosa. 

Meðfylgjandi mynd sýnir óróagraf frá jarðskjálftamæli á Litla-Skógfelli, græn lína sýnir gosóróa, sem hefur snögga lækkun um kl. 5 í morgun. Mynd af gígunum, úr vefmyndavél VÍ norðan Fagradalsfjalls, til vinstri er frá miðnætti og til hægri er frá því kl. 9:30 núna í morgun.