Mannlíf

Keilisbækur Helga og Júlíu
Helgi og Júlía afhenda bókasafninu dagbækurnar.
Föstudagur 5. júlí 2024 kl. 08:11

Keilisbækur Helga og Júlíu

Heiðurshjónin Helgi Ragnar Guðmundsson og Júlía Halldóra Gunnarsdóttir afhentu Lestrarfélaginu Baldri, og þar með bókasafni Sveitarfélagsins Voga, gestabækur sem þau hafa haldið á Keili síðan 1992. Bækurnar eru rúmlega þrjátíu talsins og eru skemmtilegur vitnisburður um heimsóknir almennings á bæjarfjall Voga á tímum sem fjallgöngur breyttust úr áhugamáli fárra í almenna og vinsæla útivist. Áður en þau hjón komu bókum fyrir á Keili höfðu skátarnir í Vogum haldið úti bókum á Keili á árunum 1976–1981.

Keilir í skýjabólstrum. Mynd úr safni Víkurfrétta

Gestabækur Helga og Júlíu og gestabók skátanna í Vogum verða varðveittar á bókasafninu um ókomna tíð og verða þar til sýnis. Í bókunum eru ekki einungis nöfn toppfara Keilis heldur einnig ljóð, sögur, teikningar og margt fleira forvitnilegt. Bækurnar eru einkar skemmtileg lesning og jafnvel efni í frekari rannsóknarvinnu. Margar bækurnar eru veðraðar enda hefur mætt á þeim mörgum. Einhverjar bækur ná yfir nokkur ár en aðrar aðeins hluta úr ári eftir að ferðir á fjallið nutu aukinna vinsælda.

Bílakjarninn
Bílakjarninn
Skissa af útilegustemmningu um verslunarmannahelgi 2003 á toppi Keilis. Helgi og Júlía tóku á móti toppförum með rjúkandi kaffi. Myndirnar tala sínu máli.

Lestrarfélagið Baldur býður alla áhugasama velkomna á bókasafnið til að skoða gestabækurnar.

Samantekt: Hilmar Egill Sveinbjörnsson.