Hleypa íbúum inn á skilgreint svæði í Grindavík
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur tekið ákvörðun um að hleypa íbúum inn á skilgreint svæði sem er austan megin við Víkurbraut í Grindavík, að Ægisgötu.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur tekið ákvörðun um að hleypa íbúum inn í Grindavík með skipulögðum hætti frá og með þessari stundu.
Íbúar og fyrirtæki austan megin við Víkurbraut og norðan við Austurveg eru í fyrsta hópi:
Víkurhóp-Norðurhóp-Hópsbraut-Suðurhóp-Efrahóp-Austurhóp-Miðhóp-Stamphólsvegur-Víðigerði-Austurvegur-Mánagata-Mánasund-Mánagerði-Túngata-Arnarhlíð-Akur-Steinar-Marargata-Vesturhóp.
Fyrirtæki við:
Hafnargötu-Seljabót-Miðgarð-Ránargötu-Ægisgötu (sunnan við Seljabót)-Garðsvegur-Verbraut-Víkurbraut- Hafnarsvæðið
Þetta verður skipulögð og stýrð aðgerð undir stjórn lögreglunnar. Íbúar sem fá að fara inn til Grindavíkur eiga að koma á söfnunarstaðinn sem er bílastæðið við gossvæðið, við Fagradalsfjall.
Það þarf að koma um Suðurstrandarveg að austan til Grindavíkur að söfnunarstað. Þar fer fram upplýsingataka og skráning, ásamt því að fólk fær frekari leiðbeiningar. Frá söfnunarstað verður ekið í bílum viðbragðsaðila inn í bæinn.
Heimild til þess að fara inn í bæinn er ábyrgðarhluti og ekki léttvæg ákvörðun og þýðir alls ekki að svæðið sé að öðru leyti opið fyrir umferð. Þetta verður skipulögð og stýrð aðgerð undir stjórn lögreglunnar.
Til athugunar fyrir íbúana
- Ekki fara ef þú þarft ekki nauðsynlega að fara
- Aðeins verður leyfi fyrir einn aðila að fara inn á svæðið, fyrir hvert heimili
- Skráið niður lista yfir það sem þið hyggist sækja áður en lagt er af stað
- Munið eftir húslykli
- Búr fyrir gæludýr ef þörf er á
- Poka eða annað undir muni
- Íbúar hafa stuttan tíma inni á heimilinu.
- Þau sem fara mega ekki vera með bráðaofnæmi fyrir dýrum því það verða gæludýr með í för í bakaleiðinni.
- Þetta er eingöngu til þess sækja mjög mikilvæga hluti s.s. gæludýr, lífsnauðsynleg lyf, hugsanlega vegabréf eða aðra ómissandi hluti fyrir heimilisfólk
- Heimilt verður að keyra ökutæki sem skilin voru eftir við rýmingu, út af svæðinu frá Grindavík, en eingöngu í fylgd viðbragðsaðila
Ítrekað er að þetta er ekki léttvæg ákvörðun. Þessu fylgir áhætta og því mjög mikilvægt að allir sem henni koma hlýði vandlega öllum fyrirmælum lögreglu sem stýrir þessari aðgerð og virði tímamörk sem verða sett.