Bílgeymsla verði íbúðir og önnur bílgeymsla ekki heimiluð
Eigandi Skiphóls, Skagabrautar 64 í Garði, hefur lagt fram fyrirspurn um hvort heimilað yrði að breyta bílgeymslu að Skagabraut 64 í tvær litlar íbúðir í tengslum við rekstur þeirrar gististarfssemi sem sömu aðilar reka á svæðinu.
Framkvæmda- og skipulagsráð Suðurnesjabæjar tekur jákvætt í erindið og samþykkir með fyrirvara um grenndarkynningu án athugasemda. Jafnframt er umsækjanda gerð grein fyrir að ekki verði heimiluð ný bílgeymsla á lóðinni verði núverandi bílgeymslu breytt í íbúðarnot.