Hér er blað vikunnar - Nú eru bara tvö blöð til jóla
Víkurfréttir eru komnar út. Rafrænt blað er komið á vefinn og prentuðum blöðum verður dreift í Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ og Voga á miðvikudagsmorgun. Blað vikunnar er 16 síður. Nú eru tvö blöð til jóla.
Grindvíkingar sem vilja nálgast prentað eintak geta sótt það á einn af okkar fjölmörgu dreifingarstöðum, t.a.m. má nálgast blaðið í öllum verslunum Samkaupa á Suðurnesjum, þ.e. Nettó, Krambúðinni og Kjörbúðinni. Þá er Víkurfréttum dreift í Salalaug í Kópavogi og í Nettó í Mjódd og á Granda. Blaðið er einnig aðgengilegt í Fjarðarkaupum.