Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Sautján nemendur útskrifast frá Fisktækniskóla Íslands í Grindavík
Mánudagur 23. desember 2019 kl. 07:55

Sautján nemendur útskrifast frá Fisktækniskóla Íslands í Grindavík

Þann 6. desember síðastliðinn voru útskrifaðir sautján nemendur frá Fisktækniskóla Íslands. Útskriftin fór fram við hátíðlega athöfn í Kvikunni í Grindavík.

Útskrifaðir voru fjórir fisktæknar, ellefu gæðastjórar og tveir netagerðamenn. Fisktækniskóli Íslands er eini skólinn á landinu sem býður upp á nám í Veiðarfæratækni og er það í fyrsta skipti í ár sem skólinn útskrifar nemendur á því sviði, Fisktækniskólinn tók formlega við náminu á síðasta ári. Nám í gæðastjórnun er kennd í samstarfi við Sýni ehf. en umsjón með brautinni hefur Klemenz Sæmundsson. Átján nemendur luku námi á vorönn og hafa því alls 35 nemendur útskrifast á árinu af fimm brautum sérnáms á sviði veiða, vinnslu og fiskeldis.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Eftir afhendingu skírteina hélt skólameistari ræðu og lagði áherslu á mikilvægi vel menntaðs fólks fyrir framtíð greinarinnar. Skólameistari lagði áherslu á að miklar breytingar eru störfum í veiðum og vinnslu og að forsenda þess að Íslendingar haldi forskoti sínu á þessu sviði – er að mennta vinnuaflið. Að lokinni athöfn þakkaði skólameistari starfsfólki samstarfsaðilum skólans og stjórn fyrir samstarfið á árinu og boðið var til kaffisamsætis í Kvikunni.

Um 60 nemendur stunduðu nám í skólanum á haustönn og þar af rúmlega helmingur í grunnámi í fisktækni. Yfir tuttugu nemendur stunda nú nám í veiðarfæratækni (netagerð) og þá er framundan mikill vöxtur innan fiskeldis en skólinn gerði í sumar samning við Arnarlax, Arctic Fish og Ice Fish um menntun starfsfólk í sjókvíum fyrirtækisins. Um 30 nemendur hófu nám í fisktækni með áherslu á fiskeldi í Bíldudal í nóvember síðastliðnum og fleiri starfsmenn fyrirtækjanna bætast síðan við á næsta ári. Haldin voru fjölmörg námskeið fyrir starfsfólk í veiðum og vinnslu og sá skólinn m.a. um  námskeið um Baader-vélar fyrir áhafnir á skipum Brim. Framhald er á þessari starfsemi á næsta ári.

Mikil auking er í umsóknum í nám við skólann og nú þegar er svo til fullskipað í nám í Marel-vinnslutækni og Gæðastjórnun sem hefst í janúar 2020.  Þá er stefnt á nám í fisktækni bæði á Ísafirði og Akureyri á næsta ári í samstarfi við fræðsluaðila í héraði á hvorum stað. Framundan er fjöldi verkefna fyrir fyrirtæki í sjávarútvegi auk verkefna á sviði þróunarsamvinnu (m.a. í Vietnam í samstarfi við Marel) og útlit fyrir mikinn vöxt í námskeiðahaldi á sviði veiða, vinnslu og fiskeldis víða um land.

Nú í desember er tekið á móti umsóknum og skráningu á vorönn 2020 og eru áhugsamir hvattir til að sækja um sem allra fyrst á heimasíðu skólans – www.fiskt.is eða hafa samband við skrifstofu skólans í síma 412 5965.