Optical Studio - 7. júlí
Optical Studio - 7. júlí

Íþróttir

Njarðvík samdi við átta  unga framtíðarleikmenn
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
föstudaginn 28. júní 2024 kl. 09:00

Njarðvík samdi við átta unga framtíðarleikmenn

Njarðvík samdi nýverið við átta unga og efnilega leikmenn í félaginu fyrir komandi verkefni í Subway-deild kvenna og 12. flokki kvenna tímabilið 2024–2025.

Einar Árni Jóhannsson, nýráðinn þjálfari liðsins, sagði það mikilvægt fyrir félagið að hlúa vel að ungum leikmönnum og færa þeim áskoranir við hæfi. Nú þegar á mála hjá félaginu eru tvíburarnir Anna og Lára Ásgeirsdætur sem og Krista Gló Magnúsdóttir. „Anna, Lára og Krista eru auðvitað þekktar stærðir hjá okkur og við ætlumst til mikils af þeim og þá bíðum við einnig öll spennt eftir því að gefa þessum ungu og efnilegum leikmönnum tækifæri á stóra sviðinu,“ sagði Einar Árni.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Þeir leikmenn sem sömdu við félagið eru Erna Ósk Snorradóttir, Veiga Dís Halldórsdóttir, Yasmin Petra Younesdóttir, Hulda María Agnarsdóttir, Kristín Björk Guðjónsdóttir, Ásta María Arnardóttir, Hólmfríður Eyja Jónsdóttir og Sara Björk Logadóttir. Allar gerðu þær þriggja ára samning við Njarðvík. Þónokkrar af þessum leikmönnum fengu að spreyta sig í Subway-deildinni á síðustu leiktíð.

„Það eru spennandi tímar framundan hjá félaginu enda er Njarðvík á leið á nýjan og glæsilegan heimavöll þar sem við munum geta tekið vel á móti Grænu ljónahjörðinni sem og gestum okkar. Nýtt húsnæði verður afhent núna á næstunni og ég veit að forráðamenn í sveitarfélaginu eru að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að húsnæðið verði tilbúið til notkunar. Þær upplýsingar sem við fáum eru að hægt verði að hefja æfingar í ágústbyrjun. Það verður ekki amalegt fyrir þessa ungu og öflugu leikmenn sem við erum núna að semja við að taka slaginn með meistaraflokki og 12. flokki í Stapaskóla,“ sagði Halldór Karlsson, formaður körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur.

Njarðvík mun keppa í nýju og glæsilegu íþróttahúsi í Stapaskóla á næstu leiktíð. Mynd/Davið Ingi Jóhannsson

Mynd og frétt af vef UMFN/umfn.is