Max 1
Max 1

Mannlíf

Djass og klassík í eina sæng í Sandgerðiskirkju
Sandgerðiskirkja. Ljósmynd/visitreykjanes.is
Föstudagur 18. október 2024 kl. 07:40

Djass og klassík í eina sæng í Sandgerðiskirkju

– Tónleikar til heiðurs Hallgrími Péturssyni

Tónleikar verða haldnir í Sandgerðiskirkju næstkomandi sunnudag, 20. október, þar sem einu þekktasta ljóði Hallgríms Péturssonar verða gerð skil á mjög nýstárlegan hátt. Tónleikarnir eru hluti af Hallgrímshátíð sem haldin verður í Hvalsneskirkju fyrr um daginn.

Verkið „Um dauðans óvissan tíma“ er tónverk fyrir orgel, kór og djasshljómsveit við samnefnt ljóð Hallgríms Péturssonar, betur þekkt sem „Allt eins og blómstrið eina“. Það er unnið út frá lagi Sólmundar Friðrikssonar við sálminn og er afrakstur samstarfs hans við Agnar Má Magnússon, djasspíanóleikara, og Arnór Vilbergsson, kantors Keflavíkurkirkju, þar sem Sólmundur leggur til lag sitt og þeir Agnar og Arnór flétta saman sínar útsetningar við ljóðið. Öll erindi ljóðsins, þrettán að tölu, verða flutt, ýmist lesin og sungin, af kór og í einsöng. Verkið er samið fyrir og flutt af djasshljómsveit og kór, n.t.t. Kór Keflavíkurkirkju undir stjórn Arnórs, sem leikur einnig á orgel, og djasshljómsveit undir stjórn Agnars Más, sem sér um píanóleik. Í hljómsveitinni er valinn maður í hverju rúmi en með Agnari leika þau Birgir Steinn Theodórsson á kontrabassa, Haukur Gröndal á saxófón og klarinett, Marína Ósk Þórólfsdóttir, söngkona, og Matthías Hemstock á trommur. Sólmundur mun svo einnig koma að söng og sjá um upplestur.

Verkefnið „Um dauðans óvissan tíma“ er styrkt af Uppbyggingarsjóði Suðurnesja og Kjalarnessprófastsdæmi. Tónleikarnir hefjast kl. 20. Aðgangur er ókeypis.

Bílakjarninn
Bílakjarninn