Mannlíf

Ljósanótt í Reykjanesbæ hafin
Fimmtudagur 5. september 2024 kl. 19:27

Ljósanótt í Reykjanesbæ hafin

Ljósanótt, fjölskyldu- og menningarhátíð Reykjanesbæjar, var sett í dag í 23. sinn, að viðstöddum leik- og grunnskólabörnum úr bæjarfélaginu.

Það mátti skynja eftirvæntingu í loftinu þegar Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri setti hátíðina.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Formaður ungmennaráðs Reykjanesbæjar, Hermann Borgar Jakobsson, dró risastóran marglitan Ljósanæturfána að húni á eina hæstu flaggstöng landsins en litir fánans eru til tákns um margbreytileikann og kraftinn sem býr í samfélaginu í Reykjanesbæ.

Það var svo Friðrik Dór sem söng inn hátíðina með börnunum sem bundu lokahnútinn á dagskrána með því að syngja öll saman lagið Velkomin á Ljósanótt sem orðið hefur að eins konar einkennislagi hátíðarinnar.

Mikil dagskrá framundan

Við tekur fjögurra daga fjölbreytt dagskrá en um 150 viðburðir hafa verið skráðir á vef Ljósanætur, ljosanott.is. Seinnipartinn í dag, fimmtudag, opnuðu listsýningar um allan bæ og verslanir bjóða upp á dúndur tilboð svo reikna má með að bærinn komi til með að iða af lífi þegar líða fer á kvöldið.

Á föstudag er öllum hátíðargestum boðið upp á kraftmikla kjötsúpu frá Skólamat og tónleika þar sem fram koma m.a. Magnús Kjartansson, menningarverðlaunahafi Reykjanesbæjar, ásamt Vintage Caravan, Jón Jónsson og fleiri.

Síðan taka við heimatónleikar og fjölbreyttir tónleikar og uppákomur á skemmtistöðum og í samkomuhúsum bæjarins er að finna alla helgina.

Tónlistarveisla á laugardag

Dagskrá laugardags hefst með svokallaðri Árgangagöngu þar sem árgangarnir hittast við Hafnargötu og arka í sameiningu að aðalsviði þar sem bæjarstjóri tekur á móti hópnum.

Iðandi dagskrá er allan laugardaginn sem nær hápunkti sínum með kvöldtónleikum á útsviði þar sem tónlistararfi svæðisins verða gerð nokkur skil með sérstakri tónlistarveislu undir yfirskriftinni Reykjanesbær 30 ára. Þar njótum við liðsinnis meðlima úr Hjálmum og Baggalút ásamt fjölbreyttum hópi söngvara og verða tónleikarnir m.a. sýndir í beinni útsendingu á aðalrás RUV.

Í lok tónleikanna tekur við bjartasta flugeldasýning landsins áður en ljósin á Berginu eru kveikt sem lýsa íbúum fram á vor og minna á Ljósanótt og sköpunarkraftinn sem í bænum býr.

Sunnudagur Ljósanætur er tilvalinn til að þræða allar þær sýningar sem ekki tókst að skoða hina dagana, gera góð kaup í handverkstjaldi og verslunum og klassískt er að leyfa börnunum að klára tívolímiðana sína. Þá er einnig boðið upp á tónleika í Höfnum með Elízu og Ragnheiði Gröndal og tónleika í Keflavíkurkirkju með Herberti Guðmundssyni og kór kirkjunnar.

Alla dagskrá Ljósanætur er að finna á www.ljosanott.is. Dagskráin er einnig í miðopnu Víkurfrétta í þessari viku.

Ljósanótt 2024 // setningarathöfn