Mannlíf

Góð mæting á opið hús Fisktækniskólans
Fulltrúar Suðurnesjabæjar buðu Fisktækniskólann velkominn í bæjarfélagið.
Laugardagur 14. september 2024 kl. 06:08

Góð mæting á opið hús Fisktækniskólans

Fisktækniskóli Íslands, sem hefur haft bækistöð sína í Grindavík til þessa, hefur fært starfsemina yfir í Sandgerði og var haldið opið hús á dögunum í hinum nýju húsakynnum skólans og var góð mæting.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

„Það var gaman að sjá hve margir mættu til að skoða nýju húsakynnin og kynna sér starfsemi skólans. Fisktækniskólinn hefur alla burði til að stækka, bæði er fiskeldi alltaf að ryðja sér meira til rúms og svo nýtist gæðastjórnunarnámið í öllum matvælaiðnaði. Marel-tækninámið er líka alltaf að verða vinsælla, allur matvælaiðnaður í dag nýtir sér tæknina og því hentar það nám mjög vel líka. Við hlökkum til vetrarins hér í Sandgerði,“ sagði Klemenz Sæmundsson, skólameistari Fisktækniskólans.