Hver verður Framúrskarandi ungur Íslendingur 2024?
JCI Ísland mun heiðra ungt fólk á aldrinum 18-40 ára sem er að takast á við krefjandi og athyglisverð verkefni þann 4. desember nk. og útnefna Framúrskarandi ungur Íslendingur.
„Við setjum það í hendurnar á fólkinu í landinu að tilnefna einhvern í sínu nærumhverfi og aldrei að vita hvort viðkomandi lendi á topp tíu lista. Opið er fyrir tilnefningar á www.framurskarandi.is og er síðasti dagur til að tilnefna 10 nóvember. Sérstök dómnefnd mun fara yfir tilnefningar og velja 10 framúrskarandi einstaklinga sem hljóta viðurkenningu. Einn þessara einstaklinga hlýtur svo verðlaunin Framúrskarandi ungur Íslendingur 2024, sem forseti Íslands Halla Tómasdóttir veitir við hátíðlega athöfn.