Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Keflavík vann Gróttu í bikarnum – Grindavík áfram eftir vítaspyrnukeppni
Alma Rós Magnúsdóttir skoraði fyrsta mark Keflvíkinga gegn Gróttu í dag. Mynd úr safni VF/JPK
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
laugardaginn 18. maí 2024 kl. 21:08

Keflavík vann Gróttu í bikarnum – Grindavík áfram eftir vítaspyrnukeppni

Keflvíkingar unnu góðan sigur á Gróttu í Mjólkurbikar kvenna í knattspyrnu í dag. Alma Rós Magnúsdóttir skoraði fyrsta mark Keflvíkinga á 11. mínútu  og Melanie Claire Rendeiro tvöfaldaði forystuna skömmu fyrir lok fyrri hálfleiks (38’).

Gróttukonur minnkuðu muninn á 55. mínútu með marki úr vítaspyrnu en Saorla Lorraine Miller innsiglaði sigur Keflavíkur á 89. mínútu.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024
Grindvíkingar fagna marki gegn Smára í fyrstu umferð Mjólkurbikarsins. Mynd/Petra Rós Ólafsdóttir

Grindvíkingar tóku á móti Skagakonum í Safamýri og það var Tinna Hrönn Einarsdóttir sem kom Grindvíkingum tvívegis yfir (41’ og 79’) en ÍA jafnaði í bæði skiptin. Eftir markalausa framlengingu þurfti því að grípa til vítaspyrnukeppni og þar skoruðu heimakonur fjögur mörg en gestirnir aðeins þrjú.

Bæði Keflavík og Grindavík eru því komin í átta liða úrslit bikarkeppni KSÍ.


Mjólkurbikar kvenna:

Grótta - Keflavík 1-3

(Alma Rós Magnúsdóttir 11’, Melanie Claire Rendeiro 38’ og Saorla Lorraine Miller 89’)

Grindavík - ÍA 2-2 (vítaspyrnukeppni 4-3)

(Tinna Hrönn Einarsdóttir 41’ og 79’)