Max 1
Max 1

Íþróttir

Njarðvík leikur í IceMar-höllinni næstu þrjú árin
Bræðurnir Gunnar og Teitur Örlygssynir með Halldóri Karlssyni, formanni körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur. Mynd/UMFN
Fimmtudagur 10. október 2024 kl. 06:04

Njarðvík leikur í IceMar-höllinni næstu þrjú árin

Ath. rangur leiktími birtist í Víkurfréttum vikunnar, réttur tími er kl. 19:00 á laugardag

Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur mun leika í IceMar-höllinni næstu þrjú árin. Nýtt og glæsilegt húsnæði hefur verið tekið í notkun í Stapaskóla í Innri-Njarðvík sem verður gjörbylting á aðstöðu fyrir félagið.

Bræðurnir Gunnar og Teitur Örlygssynir innsigluðu nýjan samning við körfuknattleiksdeildina fyrir helgi ásamt Halldóri Karlssyni, formanni deildarinnar. Fyrirtæki þeirra bræðra, IceMar, verður helsti og fremsti styktaraðili deildarinnar og mun nýja keppnishúsið því heita IceMar-höllin.

„Gunnar og Teitur hafa ekki bara lagt sín helstu lóð á vogarskálarnar sem leikmenn hjá félaginu því síðustu ár hafa þeir einnig gengið vasklega fram sem stuðningsmenn og styrktaraðilar. Það er frábært að koma í þetta glæsilega hús og vinna áfram með þeim Örlygsbræðrum í IceMar-höllinni,“ sagði Halldór.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Sjávarútvegsfyrirtækið IceMar hefur í rúma tvo áratugi starfað á Reykjanesi og selt sjávarafurðir víða um heim. Gunnar er stofnandi IceMar og fyrrum leikmaður Njarðvíkinga. „Það er magnað að sjá nýja völlinn okkar í Njarðvík og vafalaust ólýsanleg stemmning sem mun myndast hér þegar áhorfendur taka að streyma að á næstunni,“ sagði Gunnar en hann og fyrirtæki hans hafa stutt dyggilega við bakið á íþróttahreyfingunni í Reykjanesbæ til margra ára.

Meistaraflokkar Njarðvíkur hafa haldið sínar fyrstu æfingar í IceMar-höllinni og þá hafa starfsmenn í húsinu lagt nótt við nýtan dag við að gera allt tilbúið en framundan er fyrsti heimaleikur Njarðvíkinga í IceMar-höllinni. Leikurinn fer fram næstkomandi laugardag, þann 12. október kl. 19:00, þegar karlalið Njarðvíkur fær Álftanes í heimsókn í annarri umferð Bónusdeildar karla.