Mannlíf

Óperustúdíó í Reykjanesbæ
Laugardagur 24. ágúst 2024 kl. 06:18

Óperustúdíó í Reykjanesbæ

Óperufélagið Norðuróp er að setja á laggirnar Óperustúdíó í samvinnu við Tónlistarskóla Reykjanesbæjar.

Óperustúdíó er þjálfun fyrir efnilega óperusöngvara sem eru langt komnir í námi eða eru útskrifaðir einsöngvarar sem vilja bæta við sig þjálfun í sviðsframkomu og læra að undirbúa óperu- og söngleikjahlutverk og flytja á sviði undir leiðsögn fagfólks.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Norðuróp og Tónlistarskóli Reykjanesbæjar hafa átt farsælt samstarf síðustu ár og sett upp margar mjög vel heppnaðar sýningar saman: Brúðkaup Fígarós, Fiðlarinn á þakinu, Mozart Requiem og Verdi Requiem. Í öllum þessum uppfærslum hafa fjölmargir nemendur og kennarar skólans ásamt nemendum annars staðar að af landinu, sem og faglærðir söngvarar tekið þátt og öðlast mikla reynslu.

Í tengslum við Óperustúdíóið verður Hátíðarkór Norðuróps sem starfar í tvo mánuði á hverju hausti í tengslum við stærri verkefni sem kalla á stóran og öflugan blandaðan kór.

Í boði eru fjórar þátttökuleiðir. Leið 1 og 2 nýtast nemendum Tónlistarskólans og söngnemendum skólans sem lokið hafa framhaldsprófi. Leið 3 er ætluð útlærðum söngvurum, nemendum LHÍ, söngnemendum úr öðrum tónlistarskólum sem hafa lokið a.m.k.  miðprófi og vilja taka þátt í Óperustúdíóinu og eða Hátíðarkór og eru með kennara og eða meðleikara í öðrum tónlistarskólum.

Það verða tveir aðal kennarar starfandi við Óperustúdíóið:

Jóhann Smári Sævarsson, óperusöngvari: Óperusöngkennsla, leiklist og túlkun.

Antonia Hevesi, píanóleikari: Óperuþjálfun og æfingapíanisti.

Nánari upplýsingar hjá Jóhanni Smára Sævarssyni [email protected] og á vefsíðu Tónlistarskóla Reykjanesbæjar tonlistarskoli.reykjanesbaer.is