Mannlíf

Vinnuskólinn í Suðurnesjabæ virkjar ungmenni félagslega
Laugardagur 24. ágúst 2024 kl. 05:17

Vinnuskólinn í Suðurnesjabæ virkjar ungmenni félagslega

Ungmennin í Vinnuskóla Suðurnesjabæjar eru búin að vera mjög dugleg að sinna ýmsum verkefnum í sumar, segir á vef Suðurnesjabæjar. Sólin hefði þó mátt láta sjá sig oftar. Helstu verkefni ungmennana hafa verið að fegra beð og götur bæjarins, einnig hafa þau verið að aðstoða við fótbolta- og leikjanámskeið og að mála hin ýmsu listaverk um bæinn.

Vinnuskólinn er hugsaður til að virkja ungmenni félagslega, hjálpa þeim að halda rútínu og draga úr félagslegri einangrun á sumrin.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Mikið hefur verið lagt upp úr því að það sé gaman í vinnunni og hefðbundinn vinnudagur brotinn upp með fræðslu frá jafningjafræðslunni, keppni um best hreinsaða svæðið og uppskeruhátíð í lok sumars.

Oft og tíðum eru þetta fyrstu kynni ungmenna af launuðu starfi og veitir vinnuskólinn þeim tækifæri til að taka þessi fyrstu skref undir handleiðslu í vernduðu umhverfi og með jafnöldrum. Suðurnesjabær tryggir öllum ungmennum á aldrinum 14-17 ára vinnu í vinnuskólanum, segir jafnframt á vef bæjarins, þar sem einnig eru birtar nokkrar myndir frá sumrinu.