Fréttir

Af hættustigi á óvissustig
Gosstöðvarnar 3. september sl. VF/Ísak Finnbogason
Föstudagur 6. september 2024 kl. 11:55

Af hættustigi á óvissustig

Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum hafa ákveðið að færa almannavarnastig af hættustigi á óvissustig þar sem þar sem eldgosinu norðan við Stóra-Skógfell er lokið.

Eldgosið sem stóð yfir í 14 daga er þriðja lengsta eldgosið af þeim sex sem hafa orðið á Sundhnúksgígaröðinni frá því í desember 2023. Gosið sem hófst um miðjan mars stóð í um 54 daga og eldgosið sem hófst í lok maí stóð yfir í um 24 daga.  

Síðustu merki um gosóróa sáust síðdegis í gær og engin sjáanleg virkni í gígum í um hálfan sólarhring. Samkvæmt Veðurstofunni þá er landris er hafið að nýju í Svartsengi og verður hættumat Veðurstofunnar uppfært síðar í dag.


Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024