Áfram þarf að reikna með nýju eldgosi á Sundhnúksgígaröðinni
Aflögunarmælingar sýna að landris heldur áfram á svipuðum hraða og síðustu vikur. Kvika heldur því áfram að safnast fyrir undir Svartsengi og hefur rúmmál hennar aldrei verið meira eftir að goshrinan á Sundhnúksgígaröðinni hófst í desember 2023. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands.
Samhliða kvikusöfnuninni hefur jarðskjálftavirkni á Sundhnúksgígaröðinni farið smám saman vaxandi og er svipuð og var fyrir eldgosið í nóvember.
Jarðskjálftavirkni frá síðustu goslokum hefur verið aðeins austar heldur en jarðskjálftavirknin í aðdraganda eldgossins sem hófst 20. nóvember 2024. Jarðskjálftarnir austan við Sundhnúksgígaröðina eru líklega gikkskjálftar af völdum vaxandi þrýstings vegna kvikusöfnunar, en ekki endilega vísbending um líklegan uppkomustað eldgoss þó að ekki sé hægt að útiloka það. Ítarlegri greining á jarðskjálftagögnunum sem er í gangi gæti varpað skýrara ljósi á orsök þessarar breytingar í staðsetningu jarðskjálftanna.
Í ljósi vaxandi jarðskjálftavirkni samhliða áframhaldandi landrisi og kvikusöfnun er líklegasta sviðsmyndin að þetta kvikusöfnunartímabil endi með kvikuhlaupi yfir í Sundhnúksgígaröðina og að þar gjósi í áttunda skiptið frá því í lok árs 2023.
Línuritið sýnir áætlað magn kviku sem hefur bæst við undir Svartsengi á milli þeirra eldgosa eða kvikuhlaupa sem hafa orðið frá því í nóvember 2023.
Myndin sýnir jarðskjálftavirkni í kringum Sundhnúksgígaröðina frá 8. september 2024 til dagsins í dag 11. mars. Gögnin sýna því bæði jarðskjálftavirkni á milli eldgossins sem lauk 8. september og þess sem hófst 20. nóvember og tímabilið frá síðustu goslokum til dagsins í dag. Á kortinu eru grænir hringir staðsetningar skjálfta í aðdraganda eldgossins sem hófst 20. nóvember 2024 og rauðir hringir eru jarðskjálftar síðustu vikna. Hraunbreiða síðasta eldgoss er sýnd með gráu þekjunni og dökkrauðar línur sýna staðsetningu gossprungna í þeim eldgosum sem hafa orðið á svæðinu síðan í desember 2023.
Mögulegt að næsta eldgos verði stærra en fyrri gos
Síðasta eldgos sem stóð í 18 daga lauk 8. desember og því eru liðnir rúmlega þrír mánuðir frá því að gosi lauk. Þetta er lengsta kvikusöfnunartímabil í þessari eldgosahrinu á Sundhnúksgígaröðinni en í dag eru 111 dagar frá því að síðasta eldgos hófst þar þann 20. nóvember 2024.
Rúmmál kviku sem hefur safnast undir Svartsengi á þessu tímabili er það mesta sem hefur verið áætlað í kvikuhólfinu frá upphafi þessarar goshrinu í desember 2023. Þess vegna er mögulegt að ef til eldgoss kemur á næstu dögum eða vikum geti það orðið sambærilegt eða stærra en eldgosið í ágúst 2024 sem er það stærsta hingað til að rúmmáli. Byggt á fyrri atburðum mun stærð mögulegs eldgoss þó ráðast af því hversu mikil kvika losnar úr kvikuhólfinu þegar eldgos byrjar. Að svo stöddu er erfitt að segja til um stærð næsta atburðar með vissu.
Grafið sýnir lengd kvikusöfnunartímabila (bláar súlur) í aðdraganda eldgosa á Sundhnúksgígaröðinni síðan desember 2023 og rúmmál hraunbreiðanna (appelsínugular súlur) sem mynduðust í þeim. Bláu súlurnar sýna að tíminn á milli eldgosanna hefur farið vaxandi síðan í mars 2024. Rúmmál eldgosanna fór einnig vaxandi þar til í ágúst 2024 en fyrir eldgosið í nóvember 2024 náði rúmmál kviku undir Svartsengi ekki fyrra magni áður en það kom til eldgoss eins og það hefur gert í dag (sjá mynd fyrir ofan). Stór hluti kvikunnar sem fór úr Svartsengi í janúar 2024 fór í að mynda kvikugang því var hraunbreiðan sem myndaðist í eldgosinu sú minnsta.
Hættumat er óbreytt og gildir til 18. mars, að öllu óbreyttu. Sjá einnig við hverju má búast í næsta eldgosi á sama hlekk.