HS Orka
HS Orka

Fréttir

Bæjarhátíðin heiti „Vitadagar – hátíð milli vita“
Tveir vitar á Garðskaga, sá gamli frá 1897 og lýðveldisvitinn frá 1944. VF/Hilmar Bragi
Föstudagur 21. júní 2024 kl. 12:26

Bæjarhátíðin heiti „Vitadagar – hátíð milli vita“

Nýtt nafn á bæjarhátíð Suðurnesjabæjar

Ferða-,safna- og menningarráð Suðurnesjabæjar hefur samþykkt nýtt nafn á bæjarhátíð Suðurnesjabæjar. Haldin var hugmyndasamkeppni sem stóð yfir til 1. apríl sl. þar sem öllum var gefin kostur á að senda inn sína hugmynd að nafni á bæjarhátíðina.

Samþykkt var samhljóða að nafnið á hátíðinni skuli vera „Vitadagar – hátíð milli vita“ enda eru fimm fjölbreyttir vitar í Suðurnesjabæ og eru vitar ein helstu kennileiti sveitarfélagsins.

Optical Studio
Optical Studio

Skipulagning fyhrir hátíðina í ár, sem mun fara fram dagana 26. ágúst til 1. september, er hafin. Markmið hátíðarinnar er að bjóða upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá sem hentar allri fjölskyldunni, efla samhug og gefa íbúum tækifæri á að kynnast hvert öðru og sýna hvað Suðurnesjabær hefur upp á að bjóða.

Stafnesviti í Suðurnesjabæ.
Sandgerðisviti við Sandgerðishöfn.
Hólmsbergsviti stendur á bæjarmörkum Suðurnesjabæjar og Reykjanesbæjar.