Fréttir

Huldi andlit og réðst á nemanda á unglingastigi
Akademían í Reykjanesbæ. VF/Hilmar Bragi
Fimmtudagur 5. september 2024 kl. 18:36

Huldi andlit og réðst á nemanda á unglingastigi

Í lok skóladags í dag var ráðist á einn nemanda Myllubakkaskóla á unglingastigi fyrir utan Akademíuna í Reykjanesbæ. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Hlynur Jónsson, skólastjóri Myllubakkaskóla, sendir á foreldra og forráðamenn barna á unglingastigi.

„Honum varð sem betur fer ekki meint af en hefði getað hlotið mikinn skaða. Sá sem var gerandi í þessu máli huldi andlit sitt og vitum við því miður ekki hver var þar að verki. Þetta er að sjálfsögðu mál sem verður tilkynnt til lögreglunnar,“ segir skólastjórinn í bréfinu.

Viðreisn
Viðreisn

Foreldrar og forráðamenn eru hvattir að ræða við börnin sín heima og ef þau hafa frekari upplýsingar að koma þeim áleiðis til skólans.

„Mikilvægt að þegar samfélagið okkar upplifir atvik sem þetta að standa saman og aðstoða börnin við að vinna úr þeirra upplifun. Enda málefni okkar allra að stöðva slík atvik og standa vörð saman um börnin okkar,“ skrifar Hlynur Jónsson skólastjóri í póstinum.