Karlakór Keflavíkur
Karlakór Keflavíkur

Fréttir

Elsta íbúðarhúsið gefið Minja- og sögufélagi  Vatnsleysustrandar
Föstudagur 11. október 2024 kl. 06:08

Elsta íbúðarhúsið gefið Minja- og sögufélagi Vatnsleysustrandar

Minja- og sögufélag Vatnsleysustrandar fékk nýverið að gjöf íbúðarhúsið að Ásláksstöðum frá eigendum Ásláksstaða en húsið er elsta hús sveitarfélagsins, byggt á árunum 1883-1884 og er friðað.

Félagið hefur í hyggju að endurbyggja húsið til upprunalegs horfs. Gjöfin er háð þeim skilyrðum að húsið verði flutt brott. Styrkja þarf húsið og endurbyggja að hluta á staðnum áður en það verður flutt.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Félagið óskar eftir því í erindi til skipulagsnefndar Sveitarfélagsins Voga að vel verði tekið í væntanlegt erindi félagsins um að húsið verði flutt brott og því fundinn nýr staður. Í þeim efnum hefur verið horft til minjareits félagsins að Kálfatjörn. Beiðni um flutning á nýjan stað verður send nefndinni þegar undirbúningsvinnu er lokið.

Afgreiðsla skipulagsnefndar er sú að nefndin gerir ekki athugasemdir við áform félagsins um endurbyggingu og flutning íbúðarhússins að Ásláksstöðum á nýjan stað og fagnar því að félagið skuli sýna elsta íbúðarhúsi sveitarfélagsins áhuga. Byggingarfulltrúa er falið endanleg afgreiðsla málsins að undangenginni umsókn Minjastofnunar Íslands.