Fundað með fyrirtækjum úr Grindavík
Fundað var með fyrirtækjum úr Grindavík á Kænunni í gær, fimmtudaginn 30. nóvember, þar sem tekið var á móti spurningum frá fyrirtækjum og veittar upplýsingar eins og kostur var.
Á fundinum voru Fannar Jónasson bæjarstjóri, Sigurður Arnar Kristmundsson hafnarstjóri, Ragnar Árnason lögfræðingur frá SA, Guðjón Ragnarsson lögfræðingur sem mun verða fyrirtækjum innan handar og fulltrúar frá Vinnumálastofnun og Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja.
„Samtal við fyrirtæki og upplýsingagjöf er mikilvæg svo hægt sé að vinna saman að úrlausn verkefna á þessum óvissutímum. Næsti fundur verður haldinn í Reykjanesbæ eftir viku og verður nánar auglýstur síðar,“ segir í frétt frá Atvinnuþróunarfélaginu Heklunni.
Helstu atriði sem fram komu á fundinum:
- Það er ennþá hættuástand í Grindavík skv. Almannavörnum.
- Verið er að kortleggja sprungur og ástand innabæjar. Upplýsingar um þá vinnu verða birtar reglulega á vef Grindavíkurbæjar. Aðgengi fyrir fyrirtæki inni í bænum er mismunandi út frá aðstæðum s.s.stöðu lagna og fleira
- Sveitarfélagið er að vinna í því að kortleggja lagnakerfi og skemmdir til þess að geta tekið ákvörðun um næstu skref, lagfæringar og annað og það verður birt á vefnum.
- Sum fyrirtæki hafa hafið starfsemi að hluta, önnur eru í skoðun. Verið er að skoða útfærslur fyrir mismunandi atvinnustarfsemi og undanþágur þar sem þeim verður komið við s.s. fyrir smábátaeigendur, fiskmarkaðurinn er opinn yfir daginn.
- Mikilvægt er að fyrirtæki sem fá leyfi til að hefja starfsemi inná svæðinu tryggi að allt sé í lagi, lagnakerfi getur verið laskað hjá fyrirtækjum og Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja (HES) munn vinna leiðbeiningar fyrir fyrirtæki varðandi úttekt og skoðun, hvernig þau geta metið stöðuna og fundið lausnir á því. Þau geta haft samband við HES, hes.is, til að fá aðstoð. Ef fyrirtæki sem þurfa starfsleyfi hyggjast opna tímabundna aðstöðu utan grindavíkur getur HES aðstoðað við leyfismál og úttekt.
- Fyrirtæki þurfa að tilkynna skemmdir og tjón til Náttúruhamfarastofnunar sem fyrst og fylgjast með þróun á húsnæðinu þar sem atburðurinn er ennþá í gangi. Mikilvægt er að taka myndir og kortleggja skemmdir.
- Grindavíkurvegur er ennþá innan hættusvæðis og ekki er reiknað með að hægt verði að nýta hann til aðkomu inn í bæinn. Verið er að skoða hvort hægt verður að nota Norðurljósaveg í staðin.
- Unnið er að því að tryggja söltun og snjómokstur á öðrum leiðum ásamt vegagerðinni, til að tryggja góða vetrarþjónustu á aðkomuleiðum inn í bæinn.
- Í skoðun er að setja upp skipulagðar ferðir til að flytja starfsfólk til og frá Grindavík til að tryggja öryggi í umferðinni.
- Ekki er hægt að opna fyrir aðkomu annarra en íbúa og fyrirtækja sem starfa innan Grindavíkur. Það gerir það að verkum að sum fyrirtæki geta ekki hafið störf innan bæjarmarka. Skoða þarf hvort þessi fyrirtæki sem flest starfa í ferðaþjónustu fái einhvern stuðning vegna rekstrarstöðvunar.
- Vinnumálastofnun er að vinna að úrræðum og upplýsingum fyrir fyrirtæki, einstaklinga og einyrkja varðandi launagreiðslur og verður það kynnt fljótlega en hægt verður að sækja um frá 15. desember. Frekari upplýsingar og spurt og svarað verður á vef Vinnumálastofnunar.
- Næsti fundur verður haldinn í Reykjanesbæ og verður kynntur á FB hópi fyrirtækja og á vef Grindavíkurbæjar.
- Fyrirtæki geta leitað aðstoðar hjá SA og hafa þau sett upp sérstakt vefsvæði þar sem fyrirtæki geta fengið upplýsingar.
Í Tollhúsinu eru ráðgjafar frá Sambandi sveitarfélagi Suðurnesja að aðstoða fyrirtækjasvið Grindavíkurbæjar og veita upplýsingar eins og kostur er. Þá hefur Grindavíkurbær fengið til sín lögfræðinginn Guðjón Bragason sem mun verða fyrirtækjum innan handar með álitaefni og verða upplýsingar um bókanir viðtala sendar á vef Grindavíkurbæjar mjög fljótlega.
Fyrirtæki í Grindavík eru hvött til þess að skrá sig í FB hópinn Fyrirtæki í Grindavík, eigendur og stjórnendur en þar verður jafnframt hægt að eiga samtal og fylgjast með stöðunni. Þá verða reglulega sendar út upplýsingar til fyrirtækja á vef Grindavíkur grindavik.is.