Heklan
Heklan

Fréttir

Reykjanesbraut lokað vegna umferðaróhapps
Mynd frá ökumanni á Reykjanesbraut í morgun kl. 9.
Fimmtudagur 30. janúar 2025 kl. 09:39

Reykjanesbraut lokað vegna umferðaróhapps

Reykjanesbraut er lokuð í áttina til Reykjavíkur og hefur verið frá því á níunda tímanum í morgun. Ástæðan er umferðaróhapp sem varð á brautinni á milli Fitja og Grindavíkurvegar í morgun. Vörubíll þverar veginn og er unnið að því að koma honum í burt. Nokkrir bílar hafa runnið út af brautinni í morgun.

Grindavíkurvegur var lokaður í morgun en hefur verið opnaður. Þar var bíll fastur á Gíghæð.

Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að skafrenningur og snjóþekja sé víða á Reykjanesi. Þæfingsfærð, hálka og hálkublettir víða.

Í skilaboðum frá ökumanni á Reykjanesbraut um klukkan tíu segir: „Brautin er mjög illfær til Reykjavíkur. Ég sat í klukkustund föst í Hvassahrauni þar sem tveir flutningsbilar þveruðu veginn og voru fastir, tugir bila útaf og fastir.“

Uppfært kl. 10:46: Reykjanesbraut hefur verið opnuð aftur.