Heklan
Heklan

Íþróttir

GS#9 veitt gullmerki Keflavíkur
Böðvar Jónsson, formaður knattspyrnudeildar Keflavíkur, afhenti Guðmundi Steinarssyni gullmerki deildarinnar. Myndir: Keflavík/JPK
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
fimmtudaginn 30. janúar 2025 kl. 11:12

GS#9 veitt gullmerki Keflavíkur

Guðmundur Steinarsson heiðraður fyrir framlag sitt til Keflavíkur

Á aðalfundi knattspyrnudeildar Keflavíkur sem fór fram í gær var Guðmundi Steinarssyni, einum ástsælasta knattspyrnumanni Keflavíkur, veitt gullmerki deildarinnar fyrir framlag hans til knattspyrnudeildarinnar og félagsins alls.

Guðmundur er markahæsti og leikjahæsti leikmaður Keflavíkur karla í efstu deild og vann bæði silfur- og gullskó KSÍ ásamt því að vera valinn leikmaður Íslandsmótsins 2008.

Það var Böðvar Jónsson, formaður knattspyrnudeildar Keflavíkur, sem afhenti Guðmundi gullmerkið og sagði við tilefnið að nú ætti að veita einum af bestu sonum Keflavíkur heiðursmerkið. Ræðu Böðvars má sjá hér að neðan.

„Eins og oft er gert á aðalfundum deilda og félaga ætlum við að veita einum af okkar bestu sonum heiðursmerki á þessum fundi fyrir ómetanlegt framlag í þágu deildarinnar og félagsins í gegnum tíðina. 

Oft er það svo, að heiðursmerkjaveiting verður hálfgerð kveðjugjöf, veitt þeim einstaklingum sem hættir eru afskiptum af málum félagsins – en í þessu tilfelli er það ekki svo og vonandi fáum við áfram að njóta bæði þekkingar og krafta hans áfram um mörg ókomin ár. 

Sá sem um er rætt er bæði markahæsti og leikjahæsti leikmaður Keflavíkur karla í efstu deild, lék 255 leiki í efstu deild á Íslandi og skoraði í þeim 81 mark. Samtals á hann þó skráða 415 leiki hjá KSÍ í öllum keppnum og deildum og 149 mörk. Hann lék 22 landsleiki fyrir Íslands hönd, þar af þrjá A-landsleiki. 

Hann fékk silfurskóinn árið 2000 og gullskóinn 2008 þegar hann var jafnframt valinn leikmaður Íslandsmótsins. 

Ég reikna með að flestir séu búnir að átta sig á hverjum hér er lýst – GS#9 – Guðmundur Steinarsson. 

Guðmundi er hér með veitt gullmerki knattspyrnudeildar Keflavíkur með þökk fyrir allt sem hann hefur gert fyrir deildina og félagið í gegnum tíðina.“

GS#9 með eiginkonu sinni og sonum eftir að hafa tekið við gullmerkinu.