Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Grindvíkingar hentu hátt í 600 tonnum í sumar
Mánudagur 16. desember 2024 kl. 06:12

Grindvíkingar hentu hátt í 600 tonnum í sumar

Á tímabilinu maí til september árið 2024 hentu Grindvíkingar 593 tonnum á móttökustöð Kölku í Grindavík. Það er aukning um 327 tonn miðað við sama tímabil árið 2023. Þetta kemur fram í nýjum gögnum frá Kölku um sorphirðu á svæðinu og greint er frá á vef Grindavíkurbæjar.

Mikill munur var á tilteknum flokkum sorps. Þannig varð aukning í heimilissorpi um 118 tonn, lituðu timbri um 100 tonn, málmum um 50 tonn, húsgögnum um tpkæp 26 tonn og hreinu timbri um 25 tonn.

Alls hentu Grindvíkingar 187 tonnum af hreinu timbri, 186 tonnum af heimilissorpi, 89 tonnum af málmum og 41 tonni af húsgögnum á tímabilinu. Þá fóru 18 tonn af raftækjum í ruslið.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Sorplosun í sumar má að stórum hluta rekja til þess að margir Grindvíkingar neyddust til þess að tæma hús sín í tengslum við afhendingu þeirra til fasteignafélagsins Þórkötlu, sem gerði kröfu um að húsin yrðu afhent að fullu tæmd.