Hilmar Bragi Bárðarson skrifar
laugardaginn 14. mars 2020 kl. 07:55
Ný vatnsrennibraut í Vatnaveröld
Reykjanesbær hefur lagt fram erindi um breytingu á útisvæði við Vatnaveröld í Keflavík. Á svæðið kemur ný rennibraut með uppgönguturni sem verður átta til tíu metra hár.
Á síðasta fundi umhverfis- og skipulagsráðs Reykjanesbæjar var erindið lagt fram en ráðið fagnar fyrirhuguðum framkvæmdum.