Sextíu tonna slökkvibíll af Keflavíkurflugvelli til sölu
Sextíu tonna slökkviliðsbíll frá Varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli er nú á bílauppboði sem mun ljúka í dag. Þar er hæsta boð í bílinn 650.000 krónur þegar þetta er skrifað. Slökkvibifreiðin hefur verið í varðveislu Byggðasafns Reykjanesbæjar frá því í desember 2018. Nú er byggðasafnið að flytja varðveislu muna í nýtt húsnæði og þar er ekki pláss fyrir 60 tonna slökkvibifreið.
Í frétt frá 3. maí 2018 sagði:
Tveir slökkvibílar Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli voru í dag formlega afhentir Byggðasafni Reykjanesbæjar til varðveislu. Annar bíllinn er sextíu tonna trukkur og þurfti lögreglufylgd frá Keflavíkurflugvelli og að safnahúsi Byggðasafns Reykjanesbæjar á Fitjum. Hinn slökkvibíllinn er á hefðbundnari nótum.
Annar slökkvibíllinn er stærsti slökkvibíll á Íslandi fyrr og síðar og var í þjónustu Slökkviliðsins á Keflavíkurflugvelli til margra ára. Hann var notaður á flugbrautum Keflavíkurflugvallar. Slökkvibíllinn er á risastórum dekkjum og átti, þrátt fyrir þyngd sína, að komast út fyrir flugbrautir ef flugvélar myndu farast við flugvöllinn.
Minni slökkvibifreiðin var hins vegar notuð sem almenn slökkvibifreið á Keflavíkurflugvelli á tímum Varnarliðsins.
Byggðasafn Reykjanesbæjar hefur nú tekið við varðveislu bifreiðanna. Þeim verður komið fyrir í safngeymslunni á Fitjum og eru fyrsti vísir að alvöru flugvallarminjasafni um Keflavíkurflugvöll. Sagan er mikil og margir talsmenn þess að sögunni verði gerð skil á Suðurnesjum og að safnmunir glatist ekki útaf svæðinu.