WOW air hefur hætt starfsemi
WOW air hefur hætt starfsemi. Öll flug félagsins falla því niður að því er segir á vef WOW air. Farþegum er bent á að kanna möguleika á flugi hjá öðrum flugfélögum en farþegum er bent á Samgöngustofu.
WOW air var stofnað í nóvember 2011 og fór í jómfrúarflug sitt til Parísar 31. maí 2012. Í október sama ár tók WOW air yfir rekstur Iceland Express og ári síðar fékk WOW air flugrekstrarleyfi frá Samgöngustofu.
Á vef WOW air segir:
Athugið að sum flugfélög kunna við þessar aðstæður að bjóða farþegum aðstoð í formi björgunarfargjalda. Upplýsingar um þau félög verða birtar um leið og þær liggja fyrir.
Hver eru réttindi mín? Farþegum sem keyptu flugmiða með kreditkorti er bent á að hafa samband við útgefanda kortsins til að kanna möguleika á að fá flugmiðann endurgreiddan. Farþegar sem keyptu ferðina af evrópskum ferðaskipuleggjanda sem seldi flugmiðann sem hluta af svokallaðri alferð (þ.e. samsettri ferð þar sem flug er selt ásamt gistingu eða öðrum þjónustuþáttum) eiga rétt á heimflutningi á grundvelli samevrópskra reglna um alferðir. Farþegum er bent á að hafa samband við þann ferðaskipuleggjanda sem þeir keyptu ferð sína af.
Farþegar kunna jafnframt að eiga kröfu á hendur WOW AIR, m.a. á grundvelli reglugerðar um réttindi flugfarþega. Þegar um gjaldþrot er að ræða þarf að lýsa slíkum kröfum í þrotabú flugrekandans.
Hvar fæ ég nýjustu upplýsingar?
Vefur Samgöngustofu: www.samgongustofa.is
Vefur Keflavíkurflugvallar: https://www.isavia.is/
Vefur WOW air: www.wowair.com