Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

„Þau eru nokkur hryggjarstykkin í  sögu útgáfu blaðsins“
Laugardagur 11. júní 2022 kl. 06:26

„Þau eru nokkur hryggjarstykkin í sögu útgáfu blaðsins“

Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur (SVG) er stéttarfélag sem á sér langa sögu en uppruninn er stofnun Verkalýðsfélags Grindavíkur, árið 1937. Það voru nokkrir verkamenn sem stóðu að stofnun félagsins en eftir nokkur ár þótti eðlilegast að mynda sérstaka deild utan um sjómennina og það var svo árið 1956 sem sú deild klauf sig alfarið út úr Verkalýðsfélaginu og SVG var stofnað.

Sú hefð hefur myndast í gegnum árin, að sjómannafélögin á landinu hafa gefið út sérstakt sjómannablað sem er þá gefið út í kringum sjálfan sjómannadaginn. Grindvíkingar tóku þessa hefð þó ekki upp fyrr en árið 1989 þegar fyrsta blaðið kom út. Í þessum pistli verður fjallað um sögu Sjómannadagsblaðs Grindavíkur og sat núverandi ritstjóri, sá sem hefur haft pennann lengst á lofti, Óskar Sævarsson, fyrir svörum.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Óskar er starfsmaður skrifstofu SVG og fagnar 10 ára ritstjóraafmæli sínu á þessu ári en hægt er að nálgast öll fyrri blöð inni á vef SVG. 

Fyrsta blaðið árið 1989 var ekki með eiginlegum ritstjóra, heldur ritnefnd og skipuðu Kjartan Kristófersson, Borgþór Baldursson og Ölver Skúlason fyrstu nefndina. Aðalhvatamaðurinn að útgáfu blaðsins var Björn Gunnarsson. Árið eftir tóku Pétur Vilbergsson og Hinrik Bergsson við stjórninni en það er óþarfi að rekja þetta í öllum blöðum, hægt að nálgast upplýsingarnar á vef SVG eins og áður sagði.

Óskar tók við ritstjórninni árið 2013. „Það urðu kaflaskil í útgáfu blaðsins þegar Kristinn Benediktsson tók við ritstjórninni en Kiddi var frábær blaðamaður og ekki síst, ljósmyndari.  Blöðin öðluðust í raun nýtt líf þegar Kiddi kom með allar sínar frábæru myndir inn í blöðin en eftir hann liggur ógrynni frábæra ljósmynda af sjómennskunni. Áður en Kiddi tók við þá voru vinnubrögðin í kringum svona blaðaútgáfu allt öðruvísi, ekkert „digital“ og það þurfti að setja myndir inn á annan máta en gert er í dag. Efnistökin hafa nú oftast verið af svipuðum toga, allt sjómannatengt að sjálfsögðu en eins og ég segi, blöðin færðust upp um nokkur „level“ þegar Kiddi kom með sínar myndir. Því miður veiktist Kiddi og rétt náði að klára blaðið árið 2012 áður en hann féll frá og þá tók ég við. Ég vissi það nú reyndar ekki þegar ég mætti á aðalfund SVG en stungið var upp á mér sem næsta ritstjóra að mér forspurðum, standandi lófatak á fundinum og ég gat ekki vikist undan þessu. Hóf fljótlega störf á skrifstofu félagsins og þetta tvennt vann vel saman, að reka skrifstofuna og sanka að mér efni fyrir næstu blaðaútgáfu.”

Það eru nokkrir mikilvægir póstar í sögu útgáfu Sjómannadagsblaðsins. „Þau eru nokkur hryggjarstykkin í sögu þessa blaðs og fyrstan skal nefna Svavar Ellertsson í Stapa-prenti en hann hefur lengst af brotið blaðið um og prentað, en annar eins öðlingur er vandfundinn.  Afskaplega gott að vinna með honum og okkar samstarf hefur alltaf verið gott. Ég naut líka góðs af því á þessum bernskusporum mínum sem ritstjóri, að ég hafði aðgang að öllu ljósmyndasafni Kidda Ben og eins voru nokkrar greinar sem Kiddi var byrjaður á.  Annað hryggjarstykki sem vert er að minnast á er Ólafur Rúnar Þorvarðarson en eftir hann liggur sömuleiðis ógrynni ljósmynda, allt til svarthvítra mynda og fjölda greina. Við efnisöflun koma margir til hjálpar, velvild greinarhöfunda og ljósmyndara hér í víkinni er til fyrirmyndar.

Á fyrstu árunum tíðkaðist að ganga í hús og selja Grindvíkingum blaðið en í COVID breyttist það og Grindavíkurbær samþykkti að styrkja blaðið þannig að það yrði borið í hvert hús í Grindavík - endurgjaldslaust. Þó svo að aðkomu Grindavíkurbæjar sé lokið hvað það varðar, þá ætlar að SVG að halda þessu formi áfram og geta Grindvíkingar og þeir 50-60 utan bæjarmarkanna sem fá blaðið sent heim til sín, farið að láta sig hlakka til.“

En hver eru efnistök blaðsins í ár?

„Það eru fastir liðir eins og venjulega, formannspistillinn, en formaður SVG, Einar Hannes Harðarson, er í samninganefndinni og ég ætlaði að hafa langt viðtal um gang viðræðnanna en Einar sagði að það væri ekkert… að frétta…  Ég tek viðtal við Kjartan Viðarsson hjá Vísi og Hrannar Jónsson hjá Þorbirni vegna nýsmíði fyrirtækjanna og kaupa fiskiskipa í flotann, en von er á nýjum glæsilegum skipum í flota Grindvíkinga. Hér áður fyrr var aldrei hægt að fjalla um svona nýsmíði því það var ekkert slíkt í gangi.  Mér finnst athyglisvert eitt umfjöllunarefnið en hafin er smíði á svokölluðu „Grindavíkurskipi“ en um er að ræða tíróinn, áttæring í fullri stærð. Umrætt skip þótti sérstakt á sínum tíma, var frábrugðið öðrum áraskipum, en skipasmiður hefur hafið smíði á þessu skipi og er ég mjög spenntur að sjá útkomuna. Flott grein með flottum myndum. Það er fullt af fleiri áhugaverðum greinum með flottum myndum, ég lofa góðu blaði.“